31 Mars 2011 12:00

Brotist var inn í fimm bíla á höfuðborgarsvæðinu í gær og nótt. Úr þeim var stolið m.a. GPS-tækjum, fartölvum, myndavélum og Ipod. Sem fyrr ítrekar lögreglan að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.