26 September 2011 12:00

Brotist var inn í á annan tug bíla á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Úr þeim var stolið m.a. GPS-tækjum, fartölvum, greiðslukortum, radarvörum og svokölluðum Ipod-um. Sem fyrr ítrekar lögreglan að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.