1 Október 2009 12:00

Nokkuð var um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu í gær en fimm slíkar tilkynningar bárust lögreglunni. Brotist var inn í þrjá bíla í Kópavogi og tvo í Reykjavík og úr þeim stolið ýmsum verðmætum. Vegna þessa vill lögreglan ítreka að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.