17 Febrúar 2010 12:00

Brotist var inn í nokkra bíla á ýmsum stöðum í Reykjavík í gær en átta slíkar tilkynningar bárust lögreglunni. Úr þeim var m.a. stolið fartölvu, myndavél, radarvara og greiðslukorti. Sem fyrr ítrekar lögreglan að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.