31 Ágúst 2009 12:00
Nokkuð var um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu um helgina en sjö slíkar tilkynningar bárust lögreglunni. Bílarnir voru staðsettir í Reykjavík, Kópavogi, Garðabæ og Mosfellsbæ. Úr þeim var m.a. stolið fartölvum, Ipodum, greiðslukortum og golfsetti. Lögreglan vill ítreka að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.