8 September 2009 12:00

Mikið var um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu um helgina en í gær höfðu þrettán slíkar tilkynningar borist lögreglunni. Bílarnir voru staðsettir í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ. Úr þeim var m.a. stolið verkfærum, GPS-staðsetningartækjum og fartölvum. Lögreglan vill ítreka að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.