8 Janúar 2009 12:00

Nokkuð er um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu en sex slíkar tilkynningar bárust lögreglunni í gær. Fjórir bílanna voru í Reykjavík en tveir í Kópavogi. Úr þeim var m.a. stolið fartölvu, Ipod, talstöð, geislaspilara og vegabréfi. Lögreglan vill ítreka að verðmæti séu ekki skilin eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn.

Þá var þremur reiðhjólum stolið í borginni í gær. Tvö voru tekin í Laugardalnum og eitt í Hlíðunum.