10 Nóvember 2017 14:21

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar eigendur og umráðamenn ökutækja við því að skilja verðmæti eftir í bílum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að slíkir hlutir séu ekki í augsýn. Þetta er ítrekað hér því nokkuð hefur verið um innbrot í bíla á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu. Sömuleiðis er rétt að benda á mikilvægi þess að skilja bíla ekki eftir ólæsta og þaðan af síður ólæsta og í gangi á meðan skroppið er frá.

Lögreglan hvetur líka fólk til að láta vita um grunsamlegar mannaferðir og munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessi tagi en einu sinni of sjaldan. Hér er m.a. átt við lýsingu á mönnum og bifreiðum en gott er að skrifa slíkt hjá sér ef fólk tekur eftir einhverju óvenjulegu í sínu nánasta umhverfi. Sama gildir um bílnúmer en slíkar upplýsingar geta komið lögreglu á sporið. Það sem fólki kann að finnast lítilfjörlegt getur einmitt orðið til þess að upplýsa mál.