14 Nóvember 2011 12:00

Undanfarna daga hefur verið töluvert um innbrot í heimahús á höfuðborgarsvæðinu og vill lögreglan vara fólk við vegna þessa. Flest innbrotin eru í sérbýli sem staðsett eru við jaðar byggðar og eru þau dreifð um höfuðborgarsvæðið.Þjófarnir fara gjarnan inn um glugga eða svalhurðir á svefnherbergjum og virðist það ekki hafa fælandi áhrif á þá að heimili séu tengd öryggisþjónustu. Þeir eru snöggir og ásælast einkum skartgripi, fé og aðra muni sem auðvelt að er grípa með sér.

Mörg innbrotanna hafa verið framin á tímabilinu frá kl.17.00 -22.00 þegar heimilisfólk hefur brugðið sér frá. Sést hefur til tveggja karlmanna nálægt innbrotsstað sem hugsanlega eru taldir tengjast málinu en þeir ganga í hús og bera upp ýmis erindi, að því er virðist til að kanna hvort fólk sé heima við.

Öðrum er lýst sem 180-185 cm háum, dökkum yfirlitum en þó ljósum á hörund, dökkhærðum með skallablett og er hann talinn vera u.þ.b. 35 ára. Hann var í svartri dúnúlpu með hvítum stöfum aftan á. Hinn maðurinn er 20-25 ára, grannvaxinn og dökkklæddur. Hugsanlegt er talið að mennirnir séu á rauðri bifreið.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til að vera á varðbergi og koma á framfæri til lögreglu upplýsingum um grunnsamlegar mannaferðir í síma 444-1000.