8 Apríl 2010 12:00

Nokkur innbrot voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Tölvuskjá var stolið úr húsi á Seltjarnarnesi og úr í íbúð í vesturbænum hurfu skartgripir, tölva og sparibaukur. Áfengi var tekið af matsölustað í miðborginni og í Kópavogi var líka óprúttinn aðili á ferðinni en sá stal m.a. geislaspilara úr húsnæði í bænum. Þá var brotist inn í fjóra bíla í Reykjavík en úr einum þeirra var stolið radarvara og GPS-tæki. Einum bíl var stolið í borginni í gær en sá var tekinn ófrjálsri hendi í miðborginni.