10 Janúar 2019 16:36

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur til rannsóknar innbrot í Reiðhjóla- og sláttuvélarþjónustana á Vagnhöfða 6 í Reykjavík, en málið var tilkynnt til lögreglu í morgun. Þar var m.a. stolið fulldempuðum fjallareiðhjólum af gerðinni Sensa, auk Elite hjólatrainera. Talið er að innbrotið hafi verið framið í gærkvöld eða nótt, en þeir sem geta veitt upplýsingar um málið eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000, með tölvupósti á netfangið hildur.run@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Allt eins er líklegt að hinir óprúttnu aðilar bjóði hjólin til sölu og er fólk beðið um að hafa það hugfast.