13 September 2013 12:00

Lögreglan hefur upplýst innbrot í bifreið sem framið var í iðnaðarhverfi í austurborginni um síðustu helgi, en tilkynnt var um málið sl. mánudag. Jafnframt hefur tekist að endurheimta hina stolnu muni og koma þeim aftur í réttar hendur. Um er að ræða fjölmörg verkfæri og skiptir verðmæti þeirra hundruðum þúsunda. Karl á þrítugsaldri, sem hefur ítrekað komist í kast við lögin, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar, en hluti af þýfinu fannst í bifreið mannsins. Sá var margsaga um þýfið, en skýringar hans þóttu lítt trúverðugar. Ekki bætti það stöðu kauða að enn fleiri munir úr innbrotinu fundust þegar leitað var á heimili hans í framhaldinu. Afgangurinn af þýfinu kom svo í leitirnar eftir ábendingu frá árvökulum borgara, en því hafði verið komið fyrir annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Eins og gefur að skilja var hinn réttmæti eigandi verkfæranna afar glaður þegar hann fékk þau aftur í sínar hendur.