19 Ágúst 2020 15:58

Skráð voru 763 hegningarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu í júlí og fjölgaði þessum brotum á milli mánaða. Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu fyrir júlí 2020.

Tilkynningar um þjófnaði fjölgaði á milli mánaða og var þar helst að sjá fjölgun á reiðhjólaþjófnaði. Tilkynningum um innbrot fjölgaði einnig töluvert á milli mánaða og voru það innbrot í fyrirtæki og stofnanir sem töldu þar mest. Það sem af er ári hafa borist um sex prósent færri tilkynningar um innbrot en bárust að meðaltali á sama tímabili sl. þrjú ár á undan.

Í júlí voru skráðar 118 tilkynningar um eignaspjöll og fækkar þessum tilkynningum á milli mánaða. Vert er þó að taka fram að tilkynningum um meiriháttar eignaspjöll fjölgaði á milli mánaða sem og tilkynningum um veggjakrot en ekki hafa borist jafn margar tilkynningar um veggjakrot síðan í ágúst 2018.

Skráðum ofbeldisbrotum fækkaði á milli mánaða og bárust færri tilkynningar um heimilisofbeldi í júlí heldur en í júní. Tilvik þar sem lögreglumaður var beittur ofbeldi fjölgaði á milli mánaða.

Skráðum fíkniefnabrotum fjölgaði töluvert á milli mánaða og voru fjögur stórfelld fíkniefnabrot skráð á höfuðborgarsvæðinu í júlí. Tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um akstur undir áhrifum ávana-og fíkniefna fækkaði á milli mánaða líkt og tilkynningum þar sem ökumaður var grunaður um ölvun við akstur.

Í júlí voru skráð 723 umferðarlagabrot (að hraðamyndavélum undanskildum) og fækkaði þessum brotum töluvert á milli mánaða. Það sem af er ári hafa verið skráð um 28 prósent færri umferðarlagabrot á höfuðborgarsvæðinu en að meðaltali á sama tíma síðustu þrjú ár á undan.