29 Nóvember 2019 07:15

Förum varlega því það er víðast hvar stórhættuleg ísing á höfuðborgarsvæðinu, sérstaklega í íbúðagötum og göngu – hjólreiðastígum. Minnum svo ökumenn á að skafa vel af öllum rúðum ökutækja sinna. Munum einnig að huga að gangandi vegfarendum í svartasta skammdeginu. Svo má ekki gleyma að minnast á endurskinsmerki – þau auka öryggi gangandi og hjólandi til muna!