23 Nóvember 2020 12:33

Komið er að árlegri milliúttekt jafnlaunavottunar embættis Lögreglustjórans á Suðurlandi.  Í tengslum við hana hefur jafnlaunastefna embættisins verið yfirfarin og endurbætt og gefin út á ný af yfirstjórn embættisins.   Sem fyrr er meginmarkmið jafnlaunavottunar að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.   Jafnlaunastjórnunarkerfið , sem unnið er eftir jafnlaunastaðli IST 85, hefur reynst verðmætt verkfæri við launasetningu starfsmanna og eykur á trúverðugleika þeirra ákvarðana sem teknar eru og tengjast launasetningu þeirra.

Jafnlaunastefnuna má nálgast hér