23 Desember 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendir landsmönnum bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár. Minnt er á að ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu skal undantekningarlaust hringja í 112 en sólarhringslöggæsla er á höfuðborgarsvæðinu alla daga ársins. Ef erindið er af öðrum toga, og þolir e.t.v. einhverja bið, vinsamlegast hafið samband við þjónustuver embættisins á Hverfisgötu 113-115, Reykjavík, í síma 444-1000.

Sömuleiðis er hægt að koma upplýsingum á framfæri um hvaðeina með því að senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is Lögreglan er jafnframt á fésbókinni og það er líka hægt að senda henni skilaboð og fyrirspurnir á þeim vettvangi.

Lögreglan minnir einnig á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Á höfuðborgarsvæðinu eru fimm lögreglustöðvar og sérstakt rannsóknarsvið á þeim öllum. Miðlæg rannsóknardeild embættisins rannsakar stærri og flóknari sakamál. Lögreglustöðvarnar eru þessar:

Lögreglustöð 1 – Grensásvegi 9, Reykjavík – sími 444-1000. Sinnir verkefnum austan Snorrabrautar til vestan Elliðaáa. Stöðvarstjóri: Árni Vigfússon.

Lögreglustöð 2 – Flatahrauni 11, Hafnarfirði – sími 444-1000. Sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi. Stöðvarstjóri: Ólafur G. Emilsson.

Lögreglustöð 3 – Dalvegi 18, Kópavogi – sími 444-1000. Sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti. Stöðvarstjóri: Ómar Smári Ármannsson.

Lögreglustöð 4 – Krókhálsi 5b, Reykjavík – sími 444-1000. Sinnir verkefnum í Árbæ, Grafarholti, Grafarvogi, Norðlingaholti, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi og á Kjalarnesi. Stöðvarstjóri: Árni Þór Sigmundsson.

Lögreglustöð 5 – Hverfisgötu 113-115, Reykjavík – sími 444-1000. Sinnir verkefnum vestan Snorrabrautar og á Seltjarnarnesi. Stöðvarstjóri: Sigurbjörn Víðir Eggertsson.