11 Mars 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í bílskúr í austurborginni um hádegisbil í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á tæplega 100 kannabisplöntur, 30 grömm af marijúana og lítilræði af hassi. Á sama stað tók lögreglan í sína vörslu tölvu, flatskjá og skjávarpa en grunur leikur á að um þýfi sé að ræða.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.