5 September 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Garðabæ á föstudag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á um 30 kannabisplöntur og ýmsan búnað tengdan starfseminni. Á sama stað var einnig að finna þrjá snáka og voru þeir líka fjarlægðir. Karl á þrítugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.