13 Júní 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Garðabæ í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á um 25 kannabisplöntur, auk búnaðar sem tengdist starfseminni, en ræktunin var vel falin á millilofti í húsnæðinu. Á sama stað var einnig lagt hald á verulegt magn af stinningarlyfjum. Karl um fertugt var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.