11 Júlí 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í tveimur íbúðum í sama fjölbýlishúsi í austurborginni í gær og í dag. Í annarri íbúðinni var lagt hald á rúmlega 50 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar, en í hinni reyndust vera um 20 kannabisplöntur, auk græðlinga.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.