12 Janúar 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði fjórar kannabisræktanir í jafnmörgum íbúðum í fjölbýlishúsum í Reykjavík í gær.  Samtals var lagt hald á um 200 kannabisplöntur en á einum staðnum var jafnframt að finna ýmsa muni sem grunur leikur á að séu illa fengnir. Tveir menn voru handteknir í þessum aðgerðum lögreglu.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.