13 Janúar 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Grafarvogi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 100 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Húsráðendur voru fjarverandi og verða yfirheyrðir síðar.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.