11 Október 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 100 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar, en maðurinn var vistaður í fangageymslu í nótt.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.