9 Nóvember 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun á tveimur stöðum í Reykjavík í gær og lagði hald á samtals um 100 kannabisplöntur. Karl og kona voru yfirheyrð í tengslum við rannsóknina en talið er að málin tengist.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.