22 Mars 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi á dögunum. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 125 kannabisplöntur, en talsvert miklu hafði verið til kostað við að koma upp ræktuninni. Karl á fimmtugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.