29 Maí 2020 12:36

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í heimahúsi í Árbæ í vikunni. Lagt var hald á tæplega 130 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Við húsleit tók lögreglan enn fremur í sína vörslu fjármuni, sem grunur leikur á að séu tilkomnir vegna fíkniefnasölu. Tveir húsráðendur voru handteknir í þágu rannsóknarinnar og játaði annar þeirra aðild að málinu.

Við minnum á upplýsingasíma lögreglu 800 5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál, eða önnur brot sem fólk hefur vitneskju um. Ábendingum um brot má jafnframt koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.