18 Maí 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Garðabæ í fyrrakvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 130 kannabisplöntur. Á sama stað var einnig lagt hald á nokkur hundruð grömm af kannabisefnum. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu og viðurkenndi jafnframt sölu fíkniefna.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.