22 Mars 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Hlíðunum í gærkvöld. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 140 kannabisplöntur auk neysluskammta af hassi og marijúana. Þrír karlar á þrítugsaldri voru yfirheyrðir í þágu rannsóknarinnar en einn þeirra játaði að standa að ræktuninni og viðurkenndi hann jafnframt að efnin væru ætluð til sölu. Í framhaldinu var leitað í íbúð, tengdum sama manni, á öðrum stað í borginni og þar fundust rúmlega 20 kannabisplöntur til viðbótar auk neysluskammta af marijúana. Málið telst upplýst.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.