11 Október 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í kjallaraíbúð í austurborginni á föstudag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust tæplega 200 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Á sama stað var einnig lagt hald á ýmsan búnað sem tengist starfsemi sem þessari. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, var handtekinn í þágu rannsóknarinnar. Hann játaði aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.