6 Janúar 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu eftir hádegi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 300 kannabisplöntur. Tveir menn voru handteknir á vettvangi og viðurkenndu þeir aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.