23 Maí 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í austurborginni í gærmorgun. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 50 kannabisplöntur. Á sama stað var einnig lagt hald á um 1,5 kg af tilbúnu, þurrkuðu marijúana. Karl og kona, sem bæði eru á fertugsaldri, voru handtekin á vettvangi og færð til yfirheyrslu á lögreglustöð.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.