3 Júní 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í austurborginni í hádeginu gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 50 kannabisplöntur. Húsráðandi, karl á þrítugasaldri, játaði aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.