15 Janúar 2013 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í vesturbæ Reykjavíkur í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á rúmlega 70 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Ekki var að sjá að búið væri í íbúðinni en húsnæðið virðist hafa verið notað í þeim eina tilgangi að rækta  þar kannabis. Karl á fertugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.