17 September 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi á Kjalarnesi um miðjan dag í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 50 kannabisplöntur. Einnig var lagt hald á gróðurhúsalampa og fleiri hluti sem tengjast starfseminni. 

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.