19 Mars 2009 12:00

Tveir karlar á þrítugsaldri, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöld í tengslum við rannsókn á kannabisræktun á Kjalarnesi, eru nú lausir úr haldi lögreglu. Í umræddu máli fann lögreglan 621 kannabisplöntu í iðnaðarhúsnæði á Melunum ofan Vesturlandsvegar, norðan Leiruvegar og Varmadalsvegar. Plönturnar voru á ýmsum stigum ræktunar en á sama stað var einnig lagt hald á tæplega 5 kg af marijúana og svipað magn af kannabislaufum. Af aðstæðum innandyra mátti ráða að um afar umfangsmikla kannabisræktun var að ræða og hefur lögreglan ekki áður séð neitt í líkingu við þetta.

Kannabisræktunin var afar umfangsmikil.