6 September 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi á Kjalarnesi fyrr í vikunni. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 65 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar en þær vógu um 14 kg. Stór hluti hússins var undirlagður af þessari starfsemi og var búnaðurinn eftir því.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.