18 Apríl 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í einbýlishúsi í umdæminu í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á um 35 kannabisplöntur og tæplega 700 grömm af þurrkuðum kannabisefnum. Mæðgin voru handtekin í þágu rannsóknarinnar en við yfirheyrslu hjá lögreglu játaði sonurinn, sem er á þrítugsaldri, aðild sína að málinu.

Upphaf þess má rekja til upplýsinga sem lögreglan hafði undir höndum og snerust um marijúanalykt í ónefndu hverfi. Eftir að búið var að þrengja hringinn var bankað upp á í áðurnefndu húsi í þessu sama hverfi. Þar urðu fyrir svörum íbúar sem voru sakleysið uppmálað og könnuðust hreint ekkert við neina kannabisræktun. Augljóst var á látbragði þeirra að hér var eitthvað mjög gruggugt á seyði enda kom það á daginn. Sonurinn á heimilinu hafði læst sig inni í þeim hluta hússins þar sem  kannabisræktunina var að finna en hann reyndi síðan að komast undan á hlaupum. Kauði var hins vegar handtekinn hið snarasta en svo fór að móðir hans fylgdi með á lögreglustöðina. Hún var allt annað en sátt við afskipti lögreglunnar en konan var mjög æst á vettvangi og sýndi mikinn mótþróa. Hún var því einnig færð í handjárn og flutt á lögreglustöð til yfirheyrslu, líkt og áður sagði.