16 Nóvember 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Árbæ í fyrradag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 15 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Í íbúðinni var einnig lagt hald á tæplega 50 gr. af kannabisefnum. Kona á þrítugsaldri, húsráðandi á staðnum, var yfirheyrð í þágu rannsóknarinnar og sömuleiðis karl á svipuðum aldri.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.