3 September 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í Árbænum síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 440 kannabisplöntur en um helmingur þeirra var á lokastigi ræktunar. Tveir karlar á þrítugsaldri tengjast málinu sem telst upplýst.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.