6 Febrúar 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Árbæ síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 140 kannabisplöntur. Karl um þrítugt var handtekinn í þágu rannsóknar málsins.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.