22 Júlí 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í austurborginni í gær. Við húsleit fundust tæplega 60 kannabisplöntur, flestar plönturnar voru komnar á lokastig ræktunar og því tilbúnar til sölu og dreifingar. Rúmlega tvítugur karlmaður var handtekinn á vettvangi og hefur hann viðurkennt aðild að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.