2 Febrúar 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti um helgina. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust nokkrir tugir kannabisplantna á ýmsum stigum ræktunar auk lítilræðis af öðrum fíkniefnum. Á sama stað var einnig lagt hald á kylfu og nokkra hnífa. Þá tók lögreglan í sína vörslu ýmsan búnað sem tengdist kannabisræktuninni.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.