3 Febrúar 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 30 kannabisplöntur auk græðlinga. Karl á fertugsaldri hefur játað aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.