23 Júlí 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í bílskúr við raðhús í Garðabænum í gær. Um var að ræða 72 plöntur sem komnar voru á loka stig ræktunar. Húsráðandi, kona á fimmtugsaldri, var handtekin á staðnum og gekkst hún við ræktuninni. Konan hefur nánast ekkert komið áður við sögu lögreglu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.