19 Desember 2011 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Garðabæ á föstudag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 20 kannabisplöntur, fjármuni og ýmsan búnað sem tengdist starfseminni. Tveir karlar á þrítugsaldri voru yfirheyrðir í þágu rannsóknarinnar og játuðu þeir aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.