15 Febrúar 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlishúsi í Garðabæ í fyrradag. Við húsleit á áðurnefndum stað var lagt hald á 20 kannabisplöntur og nokkra tugi gramma af marijúana. Karl á þrítugsaldri var yfirheyrður í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.