16 Mars 2009 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í húsi í Garðabæ fyrir hádegi á föstudag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 100 kannabisplöntur, flestar á lokastigi ræktunar. Einnig var lagt hald á allmarga gróðurhúsalampa. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins. 

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.