5 Febrúar 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Grafarholti síðdegis í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 100 kannabisplöntur en megnið af þeim var á lokastigi ræktunar. Húsráðandi, karl á þrítugsaldri, játaði aðild sína að málinu. 

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.