24 Mars 2010 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Grafarholti eftir hádegi í gær. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 20 kannabisplöntur. Einnig var lagt hald á allnokkra gróðurhúsalampa og fleiri hluti sem tengjast starfseminni. Karl á þrítugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar og játaði hann aðild sína að málinu.

Fyrrnefnd aðgerð er liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.