10 Júlí 2012 12:00

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Grafarholti um helgina. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust rúmlega 70 kannabisplöntur á ýmsum stigum ræktunar. Húsráðandi, karl á fertugsaldri, viðurkenndi aðild sína að málinu.

Sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.